Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)
Þyrlusaga flugdeildar Landhelgisgæslu er rakin í nýrri og glæsilegri bók sem ber titilinn Til taks. Í bókinni er sagt frá baráttunni fyrir því að fá björgunarþyrlu til landsins, en þær hafa verið nokkrar í gegnum tíðina og æði misjafnar.
Tveir af höfundum bókarinnar, eru þyrluflugstjórarnir fyrrverandi, Páll Halldórsson og Benóný Ásgrímsson sem hafa komið að mörgum af eftirminnilegustu björgunarafrekum Landhelgisgæslunnar. Þriðji í hópi höfunda er Júlíus Ó. Einarsson, þjóðfræðingur og fyrrum lögreglumaður.
Sjónvarpsþátturinn Landinn slóst í för á æfingu með þyrlusveit Landhelgisgæslunnar á dögunum ásamt Benóný. Í þættinum var þyrlusagan rakin og eftirminnileg atvik rifjuð upp. Sjá má umfjöllun Landans í ummælunum hér fyrir neðan.