NATO OTAN Military Army News - North Atlantic Treaty Organization by RTP [Marine, Navy, Air, Space, Ground, Coast Force EU USA]

Channel
Logo of the Telegram channel NATO OTAN Military Army News - North Atlantic Treaty Organization by RTP [Marine, Navy, Air, Space, Ground, Coast Force EU USA]
@natoarmynewsPromote
1.52K
subscribers
380K
photos
64.7K
videos
306K
links
NATO OTAN Army News - North Atlantic Treaty Organization - Organisation du traité de l'Atlantique nord USA Europe Military News by @roadtopetabyte Discord https://discord.gg/Qr6t9J2vM9 @NatoNewsVideo
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Sprengjusérfræðingar frá 17 löndum munu á næstu tveimur vikum æfa viðbrögð við ýmsum ógnum á hinni árlegu Northern Challenge. Um er að ræða alþjóðlega æfingu Atlantshafsbandalagsins sem séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar annast og skipuleggur. Alls 320 þátttakendur frá Íslandi, Belgíu, Kanada, Tékklandi, Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Litáen, Nýja Sjálandi, Svíþjóð, Noregi, Austurríki, Póllandi, Hollandi og Bretlandi taka þátt að þessu sinni.

Á æfingunni gefst sprengjusérfræðingunum kostur á að æfa og samhæfa viðbrögð við atvikum sem kunna að koma upp, eins og t.d hryðjuverkum. Á æfingunni er líkt eftir sprengjum sem fundist hafa víða um heim og þurfa þátttakendur að meðhöndla þær og aftengja. Þetta er í tuttugasta og þriðja sinn sem Northern Challenge er haldin hér á landi. Sem fyrr fer æfingin að stærstum hluta fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli en einnig í Helguvík og í Hvalfirði.

Æfingin veitir s...

View original post
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafa fengið fjölmargar tilkynningar um borgarísjaka á Vestfjarðarmiðum og á Húnaflóa í vikunni. Siglingaviðvaranir hafa verið sendar sjófarendum vegna ísjakanna.

Áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri sigldi framhjá sjö ísjökum á leið sinni frá Húnaflóa að Norðurfirði í gær. Jakarnir voru allt frá því að vera um þrír metrar á hæð og breidd, upp í jaka sem var um 33 metra hár og um 110 metrar á lengd. Staðsetning hans var í gær, 66°03,0´N 021°14,6´V og samkvæmt áhöfn Baldurs virtist hann reka til austurs.

Landhelgisgæslan hvetur sjófarendur að sýna aðgát vegna jakanna og tilkynna staðsetningu þeirra til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.

Meðfylgjandi er mynd af einum jakanum sem var úti fyrir Reykjarfirði í gær.
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar æfir nær daglega til að vera ávallt við öllu búin. Á dögunum æfði sveitin sjúkraflutning úr flutningaskipi á Faxaflóa sem var liður í Norður-Víkingi.

Anton Brink tók þessar skemmtilegu myndir um borð í þyrlunni.
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Varnaræfingunni Norður Víkingi 24 er lokið. Megintilgangur æfingarinnar var að æfa varnir mikilvægra mannvirkja, varnir sjóleiða umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu stofnana.

Alls tóku um 1.200 manns þátt í æfingunni, þar af um 200 Íslendingar frá varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslunni, Ríkislögreglustjóra, Almannavörnum og öðrum stofnunum.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Anton Brink tók á æfingunni.
More