Lögreglan á Norðurlandi eystra (Facebook)Að búa í fámennu einangruðu samfélagi við norðurheimskautsbaug er talsverð áskorun svo ekki sé meira sagt og ekki síst þegar eitthvað bjátar á og langt í alla frekari aðstoð.
Þetta eru aðstæður sem íbúar í Grímsey búa við og þurfa að treysta á aðstoð úr landi þegar slys ber að höndum og þá er bara í boði að koma fljúgandi eða siglandi þeim til aðstoðar, og allt tekur það jú talsverðan tíma, og er einnig mikið háð veðri hverju sinni.
Í þessu samhengi er er því nauðsynlegt að reyna að undirbúa heimafólk sem best með hvaða hætti það gæti þurft að takast á við krefjandi verkefni og slys.
Nú um liðna helgi voru haldnar tvær æfingar í Grímsey þar sem heimafólk var aðstoðað og því leiðbeint um fyrstu viðbrögð í tvenns konar slysum.
Annars vegar var haldin æfing á sjó, talsvert sunnan við eyjuna, þar sem líkt var eftir því að flugvél hafi farið í sjóinn og að leita þurfti að þeim aðilum sem þar höfðu verið um borð og flytja þá í land í Grímsey. Var...
View original post